Maus – Baturinn Minn Lekur lyrics

mig vantar bát til að ferja mig á næsta stað,
til að losna við hvernig skerið sekkur með árunum,
og hvernig vonir fjara út með hárunum.
mig vantar bát,
meira en nokkru sinni fyrr...

og ég veit að hann sekkur en ég vil að þú byggir hann hvort sem er,
ég veit það að hafið mun kyngja mér, byggðu hann hvort sem er.
ég veit að hann sekkur en ég vil að þú byggir hann hvort sem er,
ég veit það að hafið mun kyngja mér heilum.

en ég er ennþá hér,
á aðgerðarleysisströnd,
og ég fylgist með hvernig brimið skellur á klettana,
munnvatn skrímslisins að melta fæðuna.
og mig vantar bát,
meira en nokkru sinni fyrr...

og ég veit að hann sekkur en ég vil að þú byggir hann hvort sem er,
ég veit það að hafið mun kyngja mér, byggðu hann hvort sem er.
ég veit að hann sekkur en ég vil að þú byggir hann hvort sem er,
ég veit það að hafið mun kyngja mér, byggðu hann hvort sem er.

en þessi sekúndubrot sem ég flýt, er ég í fyrsta sinn á leiðinni heim.
stálsleginn af stolti, sem sekkur með mér að botni,
hey þetta er allan veginn glænýtt umhverfi...
en hvernig get ég fundið það sem að er ekki á staðnum?
ég er niðurbundinn þegar ég er ekki á rétta staðnum
sem er hér hjá mér, en aldrei á sama staðnum.
hvernig get ég fundið mig?

Submitted by Guest